Auddi Blö er búinn að ákveða að fara á Þjóðhátíð og segir frá því með epísku tónlistarmyndbandi

Útvarpsþátturinn FM95Blö hefur sent frá sér myndband við lagið Þjóðhátíð bíður. Lagið er íslensk útgáfa af meistaraverkinu Total Eclipse of the Heart, sem karókíunnendur hafa rústað í áratugi. Horfðu á myndbandið sem Allan Sigurðsson leikstýrði hér fyrir ofan.

Af texta lagsins má ætla að Auddi hafi ekki verið viss um að fara á Þjóðhátíð í ár en að hann hafi ákveðið að skella sér. FM95Blö kemur einnig fram á hátíðinni í ár en þar munu Emmsjé Gauti, Aron Can, Áttan, Friðrik Dór og fleiri stíga á svið.

Auglýsing

læk

Instagram