Ef þessi útgáfa af þjóðsöngnum gefur þér ekki gæsahúð þá ertu ekki með sál

Ókei, fyrirsögnin er kannski aðeins of tilfinningarík.

En íslenska karlalandsliðið í fótbolta er að fara að spila fyrsta leikinn sinn á EM í dag og við erum að fara yfir um hér á skrifstofu Nútímans.

Í nýjum flipa: Að Gylfi Sigurðsson segi brandara á blaðamannafundum gerir okkur bara spenntari

Snorri Barón, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Maurar, greip í gítarinn í morgun og hlóð í svakalega útgáfu af þjóðsöngnum sem við verðum að deila með ykkur.

Við leggjum svo til að Snorri verði fenginn með gítarinn á næsta leik á Laugardalsvelli. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram