Hulli sækir um á auglýsingastofu í næsta þætti: „Það er inn í dag að mæta eftir lunch og taka yfirvinnu“

Ný þáttaröð af Hulla hófst á RÚV í síðustu viku. Í brotinu í spilaranum hér fyrir ofan sækir Hulli um á auglýsingastofu, þeirri heitustu í bænum.

Hugleikur Dagsson segir að nýja serían verði aðeins sturlaðri en sú fyrri. „Hulli og félagar takast á við fegurðarsamkeppnahryðjuverk, trúarbragðafótbolta, auglýsingastofukúk og júróvisionsvindl. Eitthvað fyrir alla,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Instagram