Will Smith sagði Jödu Pinkett Smith frá „greip-tækninni“ fyrir mörgum árum

Það var Will Smith sem sagði Jödu Pinkett Smith, eiginkonu sinni, frá greip-tækninni sem notuð er við munnmök og sagt var frá í nýjustu kvikmynd hennar, Girls Trip. Þetta kom fram í viðtali við aðalleikkonur myndarinnar í ástralska morgunþættinum Sunrise.

„Þessi tækni hefur verið notuð í svolítinn tíma og Will sagði mér frá henni fyrir mörgum árum — tíu árum,“ sagði Jada í viðtalinu. En hvernig virkar greip-tæknin? Það er von að þú spyrjir.

Greip-tæknin náði fótfestu fyrir nokkrum árum eftir að kynlífssérfræðingurinn Denise „Angel“ Walker birti myndband sem sló í gegn á Youtube þar sem hún fer yfir tæknina, skref fyrir skref. Myndbandið er stórkostlegt og hægt er að horfa á það í spilaranum hér fyrir ofan (ekki horfa á það í vinnunni). Samkvæmt Walker lætur greip-tæknin karlinum líða eins og hann sé að þiggja munnmök og stunda kynlíf á sama tíma.

Í myndinni Girls Trip er tæknin sýnd með greip og banana. Horfðu á viðtalið við leikkonurnar í myndinni hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram