Örskýring: Hvað gerði Sigríður Andersen rangt þegar hún ákvað hverjir yrðu dómarar við Landsrétt?

Um hvað snýst málið?

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra fór ekki eftir vali dómnefndar þegar hún valdi hverja hún ætlar að skipa sem dómara í Landsrétti. Ákvörðun Sigríðar er mjög umdeild.

Hvað er búið að gerast?

Landsréttur er nýtt millidómsstig sem verður tekið upp á Íslandi um næstu áramót. Landsréttur er sérstakur áfrýjunardómstóll fyrir allt landið sem er meðal annars ætlað að létta álagi af Hæstarétti. Dómsstigin verða því þrjú: Héraðsdómstólar, Landsréttur og Hæstiréttur.

15 dómarar verða skipaðir við Landsrétt en 37 sóttu um þegar störfin voru auglýst. Dómnefnd fór svo yfir hæfi umsækjenda og skilaði af sér lista yfir hæfustu umsækjendur. Hún mælti með því að þeir sem raða sér í 15 efstu sætin á listanum yrðu skipaðir í embætti dómara við Landsrétt.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ákvað hins vegar að fara ekki eftir tillögum dómnefndarinnar þegar hún skilaði lista yfir þá umsækjendur sem hún vill tilnefna. Sigríður leggur til að ellefu þeirra sem dómnefndin mat hæfasta verði skipaðir dómarar en skipti fjórum út og tilnefndi nýja í þeirra stað.

Sem dæmi þá vill Sigríður ekki skipa umsækjanda sem var í sjöunda sæti dómnefndarinnar og lagði til að umsækjandinn í 30. sæti listans verði skipaður. Ákvörðun Sigríðar er mjög umdeild enda hefur dómsmálaráðherra aldrei áður farið gegn tillögu dómnefndar.

Formaður Lögmannafélags Íslands segir dómsmálaráðherra fara á svig við lög með ákvörðun sinni og stjórn Lögmannafélagsins segir það „algjörlega óútskýrt“ hvernig hún komst að niðurstöðu sinni.

Hvað gerist næst?

Alþingi þarf að samþykkja tillögu Sigríðar svo hún nái í gegn. Til stendur að leggja tillöguna fram í kvöld eftir að meirihluti stjórnskipunarnefndar samþykkti hana síðdegis. Minnihlutinn skilaði séráliti þar sem tillögunni er mótmælt.

Ef tillagan verður samþykkt hyggst þingflokkur Pírata leggja fram vantrauststillögu á Sigríði Andersen.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram