Örskýring: Tilkynning Jóhanns Páls

Um hvað snýst málið?

Blaðamaðurinn Jóhann Páll hefur sagt upp störfum hjá DV. Jóhann Páll og Jón Bjarki Magnússon, félagi hans á DV, fengu blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir umfjöllun um lekamálið snemma á síðasta ári.

Hvað er búið að gerast?

Í færslu á Facebook segir Jóhann Páll að fjársterk öfl í íslensku samfélagi hatist við frjálsa fjölmiðlun og hamist gegn henni á öllum vígstöðvum. „Yfirtakan á DV er ein ljótasta birtingarmynd þess. Sá hlær best sem á spilltustu vinina.“

Jóhann Páll segir í færslunni að hann geti ekki geta hugsað sér að vinna á fjölmiðli þar sem:

– framkvæmdastjóri og eigandi láta skjöl innan af ritstjórninni berast til auðmanns úti í bæ, sama auðmanns og keypti hlut í blaðinu til að kæfa óþægilega umfjöllun um sjálfan sig.

Þarna á Jóhann við Sigurð Kára Ragnarsson framkvæmdastjóra, Sigurð G. Guðjónsson hluthafa og Björn Leifsson í World Class. Bók Reynis Traustasonar var lekið til Björns, eftir að bókin barst á ritstjórn DV fyrir mistök. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann í Harmageddon í morgun.

– blaðamenn sem dirfast að spyrja spurninga um eignarhald DV og ásetning nýrra eigenda eru látnir fjúka.

Þarna á Jóhann við að blaðamaðurinn Atli Þór Fanndal var látinn fjúka eftir að vangaveltur um eignarhald DV á Facebook.

Meira?

Tilkynningu Jóhanns Páls má lesa hér.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram