Tólf hafa boðið sig fram til forseta Íslands, sjáðu allan listann yfir frambjóðendur

Um hvað snýst málið?

Tíu manns hafa gefið kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Ólafur Ragnar Grímsson lýsti yfir í nýársávarpi sínu að hann ætli ekki að gefa kost á sér á ný.

Hvað er búið að gerast?

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson gaf kost á sér í nóvember og Youtube-stjarnan Ari Jósepsson var þá þegar búinn að tilkynna framboð. Athafnamaðurinn Ástþór Magnússontilkynnti svo um framboð sitt á dögunum rétt eins og Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur.

Þá hafa Hildur Þórðardóttir þjóðfræðingur og rithöfundur, Sturla Jónsson vörubílstjóri, Heimir Örn Hólmarssonrafmagnstæknifræðingur og Vig­fús Bjarni Al­berts­son sjúkrahúsprestur gefið kost á sér. 

Í vikunni gáfu svo kost á sér Halla Tómasdóttir athafnakona og Bæring Ólafsson, fyrrverandi forstjóri og framkvæmdastjóri hjá Coca Cola International, Hrannar Pétursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri samskiptasviðs hjá Vodafone og verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu, og Guðmundur Franklín viðskiptafræðingur.

Hvað gerist næst?

Kosn­ing­arn­ar fara fram þann 25. júní og for­setafram­bjóðend­ur þurfa að til­kynna um fram­boð fimm vik­um áður, eða 21. maí.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram