Hildur gefur út sína fyrstu EP plötu – útgáfuteiti í kvöld á Oddsson

Íslenskt

Í dag (12. maí) gefur söngkonan Hildur út sína fyrstu EP plötu. Platan ber titilinn Heart to Heart og inniheldur hún góðkunna slagara á borð við Walk With You og Bumpy Road, ásamt nýrra efni (platan er aðgengileg á Spotify).

Í tilefni útgáfunnar blæs söngkonan til útgáfuteitis á Oddsson klukkan 17:00 í dag. Fram koma GRRRRRRLS, DJ Sura – og Hildur sjálf. 

Nánar: https://www.facebook.com/event…

Þess má geta að Hildur sat fyrir spurningum SKE í fyrra þar sem hún tjáði sig meðal annars um feril sinn í frjálsum íþróttum og ræddi sína uppáhalds tilvitnun:

„’Not all who wander are lost.’ Það á frekar vel við um mitt líf.“ 

– Hildur

Áhugasamir geta lesið viðtalið í heild sinni hér:

https://ske.is/grein/lifshaming…

Auglýsing

læk

Instagram