Ný stikla úr Master of None Season 2 (myndband)

Næstkomandi 12. maí frumsýnir Netflix aðra seríu þáttarins Master of None. Í tilefni þess birti streymisveitan fyrstu stikluna úr annarri seríu á Youtube í gær (sjá hér fyrir ofan). Í stiklunni getur meðal annars að líta söngvarann John Legend og þess má geta að serían var að hluta til tekin upp á Ítalíu. 

Master of None er hugarfóstur Aziz Ansari (Parks and Recreations) og Alan Yang. Titill þáttarins er tilvísun í enska orðatiltækið „Jack of all trades, master of none.“ 

Auglýsing

læk

Instagram