Nýtt myndband frá Prins Póló

Vefsíðan albumm.is frumsýndi í dag nýtt myndband frá Prins Pólo við lagið Sandalar, en lagið fjallar um þessa dæmigerðu erkitýpu af karlmanni sem lifir fyrir fótbolta.

En hann hefur samt ekkert gaman af fótbolta, hann er bara að leita að afsökun til að hanga með félögunum og drekka bjór.

– Prins Póló

Prins Póló vinnur nú hörðum höndum að nýrri plötu sem hann vonast eftir að gefa út í maí á næsta ári. Myndbandið, sem var tekið upp í Berlín, má sjá hér fyrir neðan.

Viðtal Albumm við Prins Póló má lesa í heild sinni hér:

https://www.albumm.is/albumm-is-frumsynir-nytt-mynd…

Auglýsing

læk

Instagram