Fyrir tveimur dögum síðan (28.04.2016) í þættinum The Daily Show útskýrði fréttaritarinn Roy J. Wood fyrir stjórnanda þáttarins, Trevor Noah, af hverju auðkýfingurinn Dónald Trump væri í raun og veru rappari.
„Dónald Trump á ekki heima í Hvíta Húsinu. Dónald Trump á heima í rappmyndbandi. Allt það sem Trump segir er eins og brot úr textabók rappara; hann stærir sig af eigin auðæfum, hann sýnir kvenmönnum ítrekað vanvirðingu og á öllum tónleikum hans eru slagsmál.“
Þetta eru góð rök. Wood hélt síðan áfram:
„Í raun gæti maður samið heilt rapplag bara með tilvitnunum í Trump. Maður þurfti bara rétta taktinn.“
Wood fór svo að eigin ráði og samdi þetta lag, sem ber titilinn They Love Me.