Victoria Secret fyrirsæta í nýju myndbandi Úlfs Úlfs

Í dag leit nýtt nýtt myndband frá hljómsveitinni Úlfur Úlfur dagsins ljós. Lagið ber titilinn Barn og skartar pólsku fyrirsætunni Monika Jagaciak (einnig þekkt sem Jac í bransanum) sem hefur starfað fyrir Victoria’s Secret frá árinu 2015.

Umboðsmaðurinn Sindri Ástmarsson hjá Mid Atlantic Entertainment rekur tildrög myndbandsins á Facebook síðu sinni í dag:

„Fékk símtal í sumar þar sem mér var tjáð að Victoria Secret fyrirsætan Monika Jagaciak væri á landinu með tökuliði Vice. Hún var víst mikill aðdáandi Úlfs Úlfs og kveiknaði hugmyndin hjá Vice að taka upp tónlistarmyndband með henni og strákunum. Margir rapparar hefðu kannski tæklað þettta öðruvísi að fá svona boð frá nærfatafyrirsætu en strákarnir ákváðu að tefla við hana. Allir sem komu að þessu eiga hrós skilið og þá sérstaklega Freyr leikstjóri. Hann fékk sirca 15 klukkutíma fyrirvara að undirbúa sig.“

– Sindri Ástmarsson

Auglýsing

læk

Instagram