Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi í gær

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Maðurinn var farþegi í bifreið sem hafnaði utan vegar á móts við Félagsgarð í Kjós. Ökumaður bílsins slasaðist alvarlega og er á gjörgæsludeild Landspítalans. Tilkynning um slysið barst kl. 16.03, en hálka var á vettvangi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Auglýsing

læk

Instagram