Tónlistarmaðurinn og Jackass-meðlimurinn Bam Margera segist hafa verið að reyna að ná tali af Leon Hill, markaðsstjóra Secret Solstice-hátíðarinnar, þegar upp úr sauð aðfaranótt sunnudags.
Í myndbandi sem Margera kom til Vísis í gær segir hann að Hill hafi haft af sér fé í gegnum einhvers konar utanumhald á Youtube-rás. Nútíminn hafði samband við Hill sem vildi ekki tjá sig um ásakanir Margera þar sem þær séu óskiljanlegar.
Margera birti þessa mynd og skilaboð á Instagram í dag.
Leon Hill er frá Ástralíu og starfaði áður í kynningarteymi Margera. Hann kom hingað til lands með Margera árið 2013 þegar sá síðarnefndi gifti sig hér á landi. Í samtali við mbl.is segist hann strax hafa orðið ástfanginn af landi og þjóð og ákveðið að verja hérna aðeins meiri tíma.
Á mbl.is kemur fram að hann kynntist svo Friðriki Jónssyni, einum eiganda Secret Solstice-hátíðarinnar ásamt því að kynnast íslenskri stelpu.
Í viðtali við Hill á vefnum Entrepreneurs Journey kemur fram að hann hafi unnið fyrir fyrirtæki á borð við Audi og ING og bandaríska herinn. Hann byrjaði að starfa við samfélagsmiðla árið 2006 og stofnaði fyrirtækið uSocial.
Þjónustan sem fyrirtækið bauð upp á fólst í að selja fylgjendur á Twitter, læk á Facebook og digg á Digg, sem var vinsæll samfélagsmiðill fyrir nokkrum árum.
Þjónusta uSocial var umdeild en Hill segir að neikvæður fréttaflutningur hafi komið því á kortið og að fyrirtækið hafi velt milljón dölum fyrsta árið. Hann seldi svo fyrirtækið og hóf að starfa sem ráðgjafi en leiðir hans og Bam Margera lágu síðar saman.