Það er ekki að ástæðulausu sem Guns N’ Roses komu til Íslands að halda tónleika – við kunnum nefnilega að meta snilligáfu þeirra, líkt og svo margir aðrir í heiminum.
Þau í myndbandinu hér fyrir neðan dýrka Guns N’ Roses og þá sérstaklega lagið Sweet Child O’Mine – en eru ekki með þá tónlistarhæfileika sem þarf til að spila lagið eins og það var upprunalega flutt.
Svo þau ákváðu að flytja það með sínum tónlistargáfum – og mikið svakalega kom það vel út hjá þeim!