Lækna-Tómas:„Óvænt rassrifa í Vesturbæjarlaug“

Læknirinn Tómas Guðbjartsson,stundum kallaður Lækna-Tómas, lenti í heldur pínlegu atviki í Vesturbæjarlaug fyrir helgi. Hann segir frá þessu í skemmtilegri færslu á Facebook síðu sinni.

„Slysin gera ekki boð á undan sér. Í vikunni var ég á leið í minn 2 km sundsprett þegar vinsamlegur maður hljóp á eftir mér og sagði það “borgaralega skyldu sína að láta mig vita”. Ég var þá við að stinga mér til sunds – og hélt að hér væri kominn virkjunarsinni sem vildi mig feigan. En ástæðan var sú að þjóhnappar mínir voru til sýnis í gegnum risa saumsprettu á Arena sundbuxunum.“

„Ég trúði þessu ekki þar til ég þreifaði á mínum kæru gluteus maximus – og fann strax að húð mætti húð. Mér til frekari hryllings rakst ég á líffæri sem eiga að vera framar á líkamanum. Ég þakkaði kærlega fyrir og bakkaði inn í sturtuklefann með lófana fyrir aftan bak. Ákvað að þakka meðborgara mínum á ensku – enda minna trauma að þykjast vera útlendingur við svona pínlegar aðstæður.“

Hann segir atvikið hafa vakið mikla kátínu viðstaddra í sturtunni.

„Ég gat leigt skýlu án sleppibúnaðar og er þakklátur fyrir eftirfarandi:
Að það var myrkur
Að ég fór ekki fyrst í pottinn
Að það voru aðallega útlendingar í sundi
Að borgarar þessa lands virði skyldur sínar.“

Auglýsing

læk

Instagram