Yfirlýsing frá Sigmundi Davíð: „Sagðist bréfritari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna kúgunarmálsins í dag. Yfirlýsinguna í heild má lesa hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Malín Brand segir mannorðið farið: „Einhvern veginn höfð að fífli“

Sigmundur segir að bréfið hafi verið stílað á eiginkonu hans.

Í bréfinu var því hótað að birtar yrðu opinberlega upplýsingar sem reynast myndu skaðlegar ef ég greiddi ekki milljónir króna til bréfritara og samverkamanns hans.

Hann segir að af bréfinu að dæma virtust umræddar upplýsingar byggja á getgátum og sögusögnum.

„Áréttað var í bréfinu að ef ekki yrði gengið að kröfunum, eða ef lögreglu yrði gert viðvart, yrði séð til þess að fjölmiðlar fengju málið til umfjöllunar og sagðist bréfritari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta.“

Sigmundur segist ekki hafa nein fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson. „né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt,“ segir hún.

Yfirlýsinguna í heild má lesa hér fyrir neðan.

Vegna tilraunar til að kúga fé af forsætisráðherra vill ráðherrann koma eftirfarandi á framfæri:

„Fyrir fáeinum dögum barst bréf á heimili fjölskyldu minnar, í umslagi merktu eiginkonu minni. Í bréfinu var því hótað að birtar yrðu opinberlega upplýsingar sem reynast myndu skaðlegar ef ég greiddi ekki milljónir króna til bréfritara og samverkamanns hans.

Af bréfinu að dæma virtust umræddar upplýsingar byggja á getgátum og sögusögnum. Áréttað var í bréfinu að ef ekki yrði gengið að kröfunum, eða ef lögreglu yrði gert viðvart, yrði séð til þess að fjölmiðlar fengju málið til umfjöllunar og sagðist bréfritari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta.

Ég gerði lögreglu að sjálfsögðu strax viðvart og leysti hún málið af mikilli fagmennsku. Ég vil færa lögreglunni kærar þakkir fyrir vel unnin störf.

Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hótananna er rétt að taka fram að ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson, né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt.

Fjölskyldu minni er verulega brugðið vegna þessara atburða. Ég vil hvetja til hófstilltrar umræðu um málið og minni á að grunaðir gerendur eiga ættingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöllunina.

Fjölmiðla bið ég að sýna skilning á því að ég mun ekki veita viðtöl um málið að minnsta kosti á me ðan rannsókn þess er ekki að fullu lokið.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Auglýsing

læk

Instagram