Banaslys á Vesturlandi

Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í hafnaði utan vegar við Heydalsveg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.
Slysið átti sér stað á öðrum tímanum í nótt. Bifreiðin hafnaði ofan í á og tókst vegfarendum sem að komu að ná manninum og konu sem einnig var í bifreiðinni, út úr henni. Endurlífgunartilraunir á manninum báru ekki árangur. Konan var orðin mjög köld en með meðvitund og líklega ekki mikið slösuð. Var hún flutt með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akranesi.
Lögreglan á Vesturlandi rannsakar slysið og naut aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu við vettvangsrannsókn. Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom einnig á vettvang.
Auglýsing

læk

Instagram