Fatalína Tiger King seldist upp á nokkrum klukkustundum

Joe Exotic, betur þekktur sem Tiger King, situr nú á bak við lás og slá þar sem hann afplánar 22 ára fangelsisdóm. En þættir sem fjalla um líf hans hafa heldur betur slegið í gegn á Netflix undanfarið.

Hann lætur fangelsisvistina ekki stöðva sig í því að nýta þessa nýfengu heimfrægð og hefur nú hafið netsölu á merktum fatnaði. Nýja fatalínan inniheldur meðal annars joggingbuxur, hetturpeysur, boli og andlitsgrímur. Allt er þetta merkt með tígrisdýrum eða setningum sem tengja má við þættina og seldist fyrsta sendingin upp á örfáum klukkustundum.

Auglýsing

Um er að ræða sex mánaða samstarfsverkefni Joe Exotic og fatamerkisins Odaingerous og að sögn eiganda Odaingerous, Odain Watson, hafa nú þegar selst 7000 flíkur og eru fleiri á leiðinni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing