today-is-a-good-day

Flóni, Gugusar, Ingi Bauer og fleiri með Húkkaraballið á Þjóðhátíð

Þjóðhátíð í Eyjum verður sett með formlegum hætti föstudagskvöldið 30.ágúst, en Húkkaraballið er það sem keyrir upp stemninguna fyrir það sem koma skal þessa einstöku helgi í Herjólfsdal.
Húkkaraballið í ár lítur svona út: 
Flóni, Gugusar, Ingi Bauer, Snorri Ástráðs, Dóra Júlía, Birgir Hákon, Luigi, Bassi Maraj ofl óvæntir gestir.
Það eru svo Ingi Bauer & Snorri Ástráðs sem stýra líka partýinu á föstudagskvöldinu í Dalnum ásamt Flóna, Séra Bjössa og Bassa Maraj.
Einnig verður Sveinn Waage, Eyjamaður með meiru, kynnir á laugardagskvöldinu.
Dagskráin á Þjóðhátíð hefur aldrei verið glæsilegri: 
Bríet – Aron Can – FM95Blö – DJ Muscleboy – XXX Rottweiler hundarnir – Emmsjé Gauti – Aldamóta tónleikarnir – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – JóiPéxKróli – Sprite Zero Klan, Hipsumhaps, Háski, Bandmenn, Stuðlabandið, Pálmi Gunnars, Guðrún Árný, Klara Elías, Sverrir Bergmann og Ragga Gísla. 
Í næstu viku verða síðustu atriði hátíðarinnar kynnt.
 
Það eru Tuborg, Pepsi Max, Red Bull og FM957 sem færa landsmönnum Þjóðhátíð í Eyjum.
Miðasala er í fullum gangi á https://dalurinn.is/
 
Í fyrsta skipti verður boðið upp á lifandi streymi frá Brekkusöngnum í samvinnu við Senu live frá Brekkusöngnum og geta landsmenn því upplifað Brekkusönginn heima í stofu í gegnum netið eða myndlykla Vodafone og Símans: https://senalive.is/vidburdir/brekkusongur/
Auglýsing

læk

Instagram