Fluttur heim eftir sautján ár í LA og gefur út breiðskífu í dag

Kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson gefur út breiðskífuna You Are Here í dag en þetta er hans fyrsta sólóplata.

Eftir að hafa unnið og búið í Los Angeles í sautján ár þá flutti Atli aftur heim með fjölskyldu sinni og settist að í heimabæ sínum Akureyri. Frá hljóðveri sínu er Atli með útsýni yfir Eyjafjörðinn með sinni stórkostlegu náttúru. Þar sækir hann innblástur í tónlistina sína en tíminn, staðir og sambönd eru allt viðfangsefni í tónsmíðum hans sem má skynja í gegnum hljómmikinn strengjaleik og píanóspil.

Heimkoman vakti með Atla sterka löngun til að skapa You Are Here.

Fyrsta lagið af plötunni sem Atli samdi var „Flying“ sem varð til þegar vinur og samferðafélagi hans, Jóhann Jóhannsson, varð bráðkvaddur árið 2018. Þetta var í febrúar og snjóflyksur flögruðu fyrir utan gluggann á hljóðverinu á meðan. Hófstilltur píanóleikurinn og ljúflega þandir strengir koma saman og hylla minningu Jóhanns.

Fyrsta lag plötunnar, „Húm pt. 1″ leiðir hlustendann mjúklega inn í hljóðheim Atla. Með „Húm pt. 2″ þenst sá heimur út með taktföstu stefi og strengjaplokki. Þegar „Dropar“ var í smíðum þá lamdi rigningin rúðurnar sem varð innblásturinn fyrir áferðarmikið píanóspilið og loftkennda sellóið í laginu.

You Are Here fangar einnig stórbrotið samstarf Atla og Sinfonia Nord, sem er afsprengi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Aðrir samstarfsaðilar Atla á plötunni eru Gyða Valtýsdóttir sem spilar á selló í „Dropar“ og Viktor Orri Árnason sem spilar á fiðlu í laginu „Solid Ground“

Hér má nálgast You Are Here

Myndbönd við Húm pt. 1 og Breathing

Auglýsing

læk

Instagram