Grunaður um að hafa ráðist á þann sem tilkynnti hávaða vegna samkvæmis

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hand­tók í nótt gest í sam­kvæmi í Grafar­vogi sem grunaður var um að hafa ráðist á mann­eskju sem til­kynnti partýið. Þetta kemur fram í dag­bók lög­reglunnar.

Kemur þar fram að sá sem ráðist var á hafi ítrekað haft samband við húsráðanda, þar sem partýið fór fram, og beðið um að hávaðinn yrði minnkaður. Gesturinn sem grunaður er um líkamsárásina neitaði að gefa upp nafn sitt við handtökuna en hann var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Frá miðnætti og til klukkan fimm í morgun komu þrettán mál á borð lögreglunnar vegna samkvæmishávaða og þurfti lögreglan stundum að fara oftar en einu sinni á vettvang.

Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins

Auglýsing

læk

Instagram