today-is-a-good-day

Gul viðvörun í kvöld og á morgun

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland sem gildir frá kl. 19 í kvöld til kl. 4 í nótt.

Rigning verður við ströndina og gert er ráð fyrir 15-23 m/sek og slyddu eða snjókomu á Hellisheiði, Þrengslum og í uppsveitum. Á morgun ,fimmtudag, er svo önnur gul viðvörun frá hádegi þar sem búast má við  15-23 m/sek og mjög litlu skyggni og éljum.

Varað er við ferðalögum á meðan veðrið gengur yfir. Bent er á að hægt er að fylgjast með veðri og veðurspá á www.vedur.is og veðri og færð á vegum á www.vegagerdin.is

Auglýsing

læk

Instagram