Icelandair býður nú farþegum að kolefnisjafna flug sitt

Frá og með deginum í dag geta farþegar Icelandair og Air Iceland Connect, kolefnisjafnað flug sitt gegn greiðslu.

Farþegum er boðið að planta ákveðið mörgum trjám til að kolefnisjafna hvert flug en reiknað er út hversu mikið af gróðurhúsalofttegunum losna við flug til áfangastaða félagsins.

Í samstarfi við Klappir Grænar lausnir hafa Icelandair og Air Iceland Connect reiknað út hversu mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum losna við flug til allra áfanga­staða félag­anna. Sem dæmi er kolefn­is­fót­spor ein­stak­lings sem flýgur báðar leiðir frá Reykja­vík til Amster­dam í almennu far­rými 0,3 tonn og er far­þega því boðið að planta þremur trjám fyrir 639 krónur til kolefn­is­jafna flug­ið. Í lengra flugi eins og til dæmis til Seattle eru það 0,9 tonn og gera það níu tré fyrir 1.824 krón­ur.

Mun þessi viðbótargreiðsla farþega renna óskert til til Kol­viðar sem er kolefn­is­sjóður sem stofn­aður var af Skóga­rækt­ar­fé­lagi Íslands og Land­vernd. Sá sjóður fjár­magnar aðgerðir til bind­ingar kolefnis með land­græðslu, skóg­rækt og öðrum leiðum sem draga úr nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.  Þetta kom fram á vef Kjarnans.

Auglýsing

læk

Instagram