Kviknaði í tveim­ur bíl­um eft­ir árekst­ur

Eldur kom upp í tveimur bílum eftir árekstur á Kor­p­úlfsstaðavegi skömmu fyr­ir kl. 8 í morg­un. Slökkviliðið á höfuðborg­ar­svæðinu kom á staðinn og slökkti eldinn.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá slökkviliðinu kom eld­ur upp í öðrum bíln­um við árekst­ur­inn og barst svo í hinn. Einn var í hvor­um bíl og báðir sluppu óslasaðir frá árekstr­in­um. Þeir höfðu báðir náð að forða sér úr bílunum áður en eldurinn kom upp.

Bú­ast má við því að Kor­p­úlfsstaðavegi verði lokað í ein­hvern tíma á meðan að unnið er að því að fjar­lægja bíl­ana af staðnum.

Þetta kom fram á vef Mbl.

Auglýsing

læk

Instagram