today-is-a-good-day

Lifandi Klúbbur Listahátíðar

Í vikunni verður nóg um að vera í Klúbbi Listahátíðar í Reykjavíkur sem hefur tekið yfir Iðnó í allt sumar. Boðið verður upp á Happy Hour tónleika miðvikudag og fimmtudag kl. 17:00 þar sem annars vegar þau Rósa Guðrún og Daníel koma fram og hins vegar tónlistarkonan Margrét Arnar í notalegri stemningu á kaffihúsinu.

Á föstudagskvöld kl 20:00 slær svo tónlistarkonan Hekla Magnúsdóttir upp tónleikum í hátíðarsal Iðnó.

Listfélagið FLÆÐI tekur svo yfir Klúbbinn á laugardaginn með fjölbreytta dagskrá listar og tónlistar í tilefni að eins árs afmæli þeirra.

Allir viðburðir Klúbbsins eru ókeypis og eru allir velkomnir.

Auglýsing

læk

Instagram