Ljósanótt í Reykjanesbæ aflýst

Stýrihópur Ljósanætur ákvað á fundi sínum í gærmorgun að aflýsa Ljósanótt 2021 sem til stóð að halda dagana 2.-5. september.

„Ákvörðunin er tekin í ljósi gildandi samkomutakmarkana og þeirrar stöðu sem faraldurinn er í um þessar mundir. Stýrihópurinn telur rétt að Reykjanesbær geri það sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir óþarfa útbreiðslu veirunnar á meðan álag er mikið á heilbrigðisstofnanir og aðra grunnþjónustu líkt og raunin er. Því verða engir viðburðir haldnir í nafni Ljósanætur í ár,“ segir í tilkynningu.

Þar segir einnig að sjálfsagt sé að halda í heiðri þær fjölskylduhefðir sem skapast hafa í kringum í Ljósanótt, svo sem að borða saman súpu, fá sér göngutúr í bæinn, líta við í safnahúsin eða á aðrar listsýningar. En um leið eru allir hvattir til varkárni og að gæta vel að persónulegum sóttvörnum.

Auglýsing

læk

Instagram