today-is-a-good-day

Nýr sumarsmellur frá Skítamóral

Hljómsveitin Skítmórall er að senda frá sér nýtt lag. Lagið ber heitið Innan í mér og er væntanlegt á Spotify á föstudaginn.

Lagið, sem er eftir Einar Bárðarson, fjallar um tilfinningar einhvers sem virðist eiga erfitt með að halda „kúlinu“ í kringum aðra manneskju. Vignir Snær Vigfússon annaðist upptöku lagsins og Addi 800 masteraði.

„Það eina sem manni dett­ur í hug þegar maður heyr­ir lagið er að meðlim­ir sveit­ar­inn­ar hafi fengið of stór­an skammt af Pfizer,“ seg­ir talsmaður sveit­ar­inn­ar.

Skítamórall mun troða upp á Fjölskyldu og tónlistarhátíðinni Kótilettunni, á Selfossi, á föstudagskvöldið. En það er í fyrsta skipti sem sveitin kemur saman opinberlega í rúmt ár.

Auglýsing

læk

Instagram