Nýr þjóðleikhússtjóri verður skipaður frá og með áramótum

Nú fyrir helgi skilaði þjóðleikhúsráð inn umsögn sinni um umsækjendur um embætti þjóðleikhússtjóra.

Verða þeir umsækjendur sem metnir voru hæfastir boðaðir í framhaldsviðtöl í mennta- og menningarmálaráðuneyti á næstunni. En sjö manns sóttu um stöðuna. Nýr þjóðleikhússtjóri verður skipaður frá og með áramótum.

Þau sem sóttu um stöðuna voru þessi:
Ari Matthíasson, þjóðleikhússtjóri,
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikari og leikstjóri,
Guðbjörg Gústafsdóttir,
Kolbrún K. Halldórsdóttir, leikstjóri,
Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins,
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri
Stefán Sturla Sigurjónsson, verkefnastjóri, leikari og rithöfundur.
Er meðal annars tekið á menntunar- og hæfniskröfum og hafði þjóðleikhúsráð matsviðmið frá sérfræðingum Capacent til hliðsjónar við umsögn sína. Þetta kom fram á vef Rúv.
Auglýsing

læk

Instagram