Páskaball Bigga Sævars og hljómsveitar

Biggi Sævars og ballhljómsveitin hans stóðu fyrir páskaballi í gærkvöldi, á páskadag. Þetta kemur fram á vef Vísis

Að sjálfsögðu voru engir áhorfendur í salnum en ballið var sent út í beinni útsendingu á vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir.

Biggi, sem er einn þekktasti trúbador landsins, sá um sönginn, Magnús Hafdal sá um gítar og bakraddir, Hanni Bach sá um trommurnar, Baldur Kristjánsson var á bassa og svo var það Gunnar Hilmarsson sem lék á gítar. Útsendingin var send úr samkomusal Vídalínskirkju af Hafdal framleiðslu.

Hér fyrir neðan má sjá upptöku frá tónleikunum.

Auglýsing

læk

Instagram