Staðan tekin á upplýsingafundi í dag kl 14

Upplýsingafundur almannavarna fer fram í Katrínartúni í dag klukkan 14.

Á fundinum fara þau Alma Möller land­lækn­ir, Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir og Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir rík­is­lög­reglu­stjóri yfir stöðuna hvað varðar framgang kórónuveirunnar á landinu.

Síðustu þrjá sólarhringa hafa 143 einstaklingar greinst með veiruna. Það er mikil aukning frá því sem hefur verið síðustu vikurnar. Landspítalinn hefur verið færður á hættustig og starfsfólk og nemendur í framhaldsskólum og há­skól­um eru nú skyldug til að til að vera með grím­ur inni í skólabyggingum.

Auglýsing

læk

Instagram