SVEFN ráðstefna í Hörpunni í október

SVEFN ráðstefnan verður haldin 19. október n.k. í Eldborgarsal Hörpu þar sem farið verður ítarlega yfir mikilvægi svefns fyrir einstaklinginn, fyrirtæki og samfélagið í heild. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er dr. Matthew Walker sem slegið hefur í gegn um heim allan með bók sinni Why we sleep – mögnuð bók sem hefur opnað augu almennings fyrir mikilvægi svefns í tengslum við heilsu, vellíðan og árangur. Matthew Walker er prófessor við Harvard háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Hann er virtur vísindamaður á þessu sviði og hefur birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar.

 
Dr. Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns – https://www.betrisvefn.is/ – stendur fyrir ráðstefnunni. Erla er klínískur sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og sérfræðingur í svefnrannsóknum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað mikið um svefn á innlendum vettvangi og gaf út bókin Svefn með Forlaginu árið 2017.

Er svefn vandi fyrirtækja?

Svefnvandi er eitt stærsta og dýrasta vandamál fyrirtækja í dag. Samkvæmt nýjustu könnunum segist helmingur Íslendinga ekki sofa nóg og 34% sofa undir sex klukkustundum en svo stuttur svefn eykur líkur á margvíslegum andlegum og líkamlegum sjúkdómum, dregur úr framleiðni og eykur slysahættu.

Ef kostnaður íslensks samfélags af skertum svefni landsmanna er svipaður og í Bandaríkjunum má áætla að hann sé um 55 milljarðar króna árlega.
Rannsóknir sýna að svefnleysi meðal starfsmanna hafi m.a. eftirfarandi áhrif:
  • Fjarvistir og minnkuð framleiðni sem jafngilda 7-11 daga fjarvistum á starfsmann á ári.
  • Svefnlausir starfsmenn eru allt að 70% líklegri til að gera mistök og lenda í slysum.
  • Aukin hætta á kvíða, þunglyndi, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum ásamt neikvæðum áhrifum á lífslíkur.
 
Samstarfsaðilar SVEFN ráðstefnunnar eru Landsbankinn, Lyfja, VÍS og Betra bak. 
Auglýsing

læk

Instagram