Tveir unnu 5 milljónir í Happdrætti Háskólans

Tveir heppnir miðaeigendur unnu 5 milljónir króna hvor í Happdrætti Háskólans þegar dregið var í gærkvöldi. Þá hrepptu átta miðaeigendur eina miljón króna hver og tíu fengu hálfa milljón hver.

Í heildina skiptu vinningshafar í febrúarútdrætti Happdrættisins með sér rúmum 143 milljónum í skattfrjálsa vinninga.

„Happdrætti Háskólans óskar vinningshöfum innilega til hamingju með vinninga sína og þakkar stuðninginn,“ segir í tilkynningu frá happdrættinu.

Auglýsing

læk

Instagram