Vinn, vinn í Listasal Mosfellsbæjar

Föstudaginn 3. júlí kl. 16-18 er opnun sýningar Söru Bjarkar Hauksdóttur, Vinn, vinn. Sara Björk er fædd árið 1977 og stundar nám við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

Hún er auk þess menntaður hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og með mastersgráðu í lögfræði. Öll verkin á sýningunni eru gerð í samvinnu við aðra listamenn m.a. GDRN bæjarlistamann Mosfellsbæjar og Tinnu Royal bæjarlistamann Akraness. Mörg verkanna eru unnin á tímum COVID-19 sem hafði óvæntar og skemmtileg áhrif á samstarf Söru Bjarkar við listamennina og verkin sjálf. Síðasti sýningardagur er 31. júlí.

Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2. Opið er kl. 12-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum.

Auglýsing

læk

Instagram