Stakk tvo með hnífi á Hlíðarenda í gær: Dæmdur í gæsluvarðhald í dag

Karlmaður um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 5. apríl, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn var handtekinn á miðborgarsvæðinu í gærkvöld, en hann er grunaður um að hafa stungið tvo menn með hnífi í Hlíðarendahverfinu í Reykjavík um fjögurleytið í gær.

Á öryggismyndavél verslunarinnar OK Market sést hvar maðurinn gengur inn og virðist svo, af tilefnislausu, ráðast á tvo starfsmenn verslunarinnar sem stóðu á bakvið afgreiðsluborðið.

Þeir sem urðu fyrir árásinni voru báðir fluttir á slysadeild og er líðan þeirra eftir atvikum.

Auglýsing

læk

Instagram