Ali Baba notar Dag borgarstjóra í besta jóladagatal ársins: „Það er svona mikið Dagur til jólin“

Veitingastaðurinn Ali Baba er uppáhalds arabíski veitingastaður margra borgarbúa. Þó svo að aðalsmerki staðarins sé vissulega gott kebab þá eru þeir félagar einnig þekktir fyrir snilli sína á Facebook. Í gær útbjó staðurinn sérstakt jóladagatal þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er í aðalhlutverki. Sjáðu færsluna hér að neðan.

Sjá einnig: Tíu bestu færslur Ali Baba á Facebook: „Allir sem koma til Ali Baba í dag fá frítt nýtt kærasta, árskort í sund og shawerma roll“

Færslan hefur vakti mikla lukku en yfir 900 manns hafa líkað við færsluna og yfir 170 deilt henni þegar þessi frétt er skrifuð. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Facebook-síða Ali baba kemst í fréttirnar en hún er afar vinsæl.

Haha það er svona mikið Dagur til jólin 😀

Posted by Ali Baba on Föstudagur, 1. desember 2017

Auglýsing

læk

Instagram