Almáttugur! þessi kona var að stunda kynlíf, Amber Rose berst fyrir jafnrétti

Fyrirsætan og athafnakonan Amber Rose berst nú fyrir því að konur þurfi ekki að skammast sín fyrir það sem körlum finnst sjálfsagður hlutur.

Í byrjun október stendur hún til að mynda fyrir druslugöngu í Los Angeles og í myndbandinu hér fyrir neðan tekur hún fyrir hið svokallaða „walk of shame“.

Göngutúrinn heim eftir einnar nætur gaman er oftar en ekki kallaður „walk of shame“ og því vill Amber Rose breyta. Í þessu myndbandi á grínsíðunni Funny or Die kallar hún göngutúrinn „walk of no shame“ og ber höfuðið hátt, þrátt fyrir að hafa stundað kynlíf daginn áður.

Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

 

Taktu próf! Hver er aldur þinn á samfélagsmiðlum?

Auglýsing

læk

Instagram