Auddi, Steindi og Sveppi skrifa nýja sketsaþætti

Auðunn Blöndal, Steindi Jr. og Sveppi byrjuðu í gær að skrifa nýja sketsaþætti sem hafa fengið vinnuheitið FM95Blö og verða sýndir á Stöð 2. Þetta kemur fram á Vísi.

Sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson verða með þeim félögum í teyminu. Auðunn segir í samtali við Vísi að þættirnir séu á frumstigi.

Við erum rétt að byrja. Við eigum eftir að leika sjálfir í þáttunum en svo koma fleiri inn í verkefnið þegar á líður.

Tökur á þáttunum hefjast í haust og hann fer í loftið næsta vetur.

Auglýsing

læk

Instagram