Bandarísk hjón nefndu son sinn í höfuðið á Gunnari Nelson

Hin bandaríska Stephanie Ann Kenealy og eiginmaður hennar nefndu son sinni í höfuðið á bardagakappanum Gunnari Nelson. Drengurinn fæddist 25. júlí og fékk nafnið Gunnar James Kenealy. Þetta kemur fram á vef MMA frétta.

Sjá einnig: Gunnar Nelson var týpískur Gunnar Nelson á blaðamannafundi

Stephanie skildi eftir skilaboð á vegg Gunnars á Facebook þar sem hún sagði frá raunum eldri sonar síns og þeim nýfædda, sem er glímir við veikindi.

„Hann er bardagamaður og hefur ekki hugmynd um það. Hann er ekki ennþá kominn heim af spítalanum,“ segir hún.

Hann er mjög veikur og læknarnir hafa ekki fundið hvað er að honum. Ég ákvað að birta þetta eftir síðasta UFC-bardagann þinn. Til hamingju með bardagann! Að berjast er í eðli okkar og Gunnar er nafn bardagamanns. Hann mun berjast!

Gunnar skildi eftir skilaboð til drengsins undir myndinni. „Það er sannur heiður að bera sama nafn og hann. Haltu áfram að berjast, vinur. Hugur minn er hjá þér og fjölskyldu þinni.“

Auglýsing

læk

Instagram