Chrissy Teigen ögrar reglunum og birtir aðra brjóstamynd af sér á Instagram

Fyrirsætan Chrissy Teigen er ekki ánægð með reglur samskiptamiðilsins Instagram. Konur mega ekki birta myndir af sér berum að ofan eins og karlar og hún hefur mótmælt þessu síðustu daga með því að birta myndir sem brjóta reglurnar.

Teigen fór mikinn í gær og birti myndir sem voru fjarlægðar jafn óðum af Instagram.

Sjá einnig: Instagram fjarlægði brjóstamynd af Chrissy Teigen en hún birti myndina aftur og aftur

Hún birti þá þessi skilaboð á Twitter þar sem hún boðaði endurkomu geirvörtunnar.

Teigen birti svo þessa mynd á Instagram í nótt sem ögrar reglunum án þess þó að brjóta þær. Myndin hefur allavega fengið að vera í friði á Instagram-síðu fyrirsætunnar.

View this post on Instagram

HAIR @jrugg8

A post shared by chrissy teigen (@chrissyteigen) on

Auglýsing

læk

Instagram