Conor McGregor hrifnari af flugeldum en Gunnar Nelson: „Íslendingunum er drullusama“

Spennan er að ná hámarki fyrir bardaga Gunnars Nelson og Brandon Thatch annars vegar og Conor McGregor og Chad Mendes hins vegar á UFC-bardagakvöldi í Las Vegas á laugardaginn.

UFC-bardagasambandið birtir reglulega örþætti á Youtbue þar sem fylgst er með undirbúningi fyrir bardagana. McGregor og Mendes eru í sviðsljósinu í nýjum þætti sem má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Gunnar Nelson nýtur lífsins í Las Vegas

Þar sést meðal annars þegar Conor McGregor dáist af flugeldunum yfir Las Vegas á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí síðastliðinn.

Gunnar Nelson lætur sér þó fátt um finnast og skoðar símann sinn: „Íslendingunum er drullusama,“ segir McGregor sem er öllu hrifnari af sjónarspilinu.

Horfðu á þáttinn hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram