Damien Rice tók upp myndband á Íslandi: Gekk fram af bryggju

Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice tók upp myndband hér á landi í gær. Hann hefur dvalið á Íslandi undanfarnar vikur, eins og Nútíminn greindi frá á dögunum.

Myndbandið er við lagið I Dont Wan’t to Change You. Þrátt fyrir að myndbandið hafi verið tekið upp í gær er strax hægt að sjá brot úr því hér fyrir neðan. Í brotinu sést Damien Rice stökkva af bryggju — viðeigandi, enda lagið sjálft afar dramatískt.

Damien Rice sendir frá sér plötuna My Favourite Faded Fantasy 31. október næstkomandi en upptökustjórinn Rick Rubin stýrði upptökum ásamt Rice.

Auglýsing

læk

Instagram