Fjárfesta 200 milljónum í hugmynd Þorsteins og félaga: „Ótrúlegt hvað þetta gerðist hratt“

Alþjóðlegi fjárfestingarsjóðurinn Index Ventures leiðir fjárfestingu upp á 200 milljónir í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Teatime. Stofnendur Teatime eru þeir Þorsteinn Baldur Friðriksson, Ýmir Örn Finnbogason, Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson og Jóhann Þorvaldur Bergþórsson. Þeir voru allir stofnendur eða lykilstarfsmenn hjá Plain Vanilla sem gefur út QuizUp-spurningaleikinn.

Index Ventures hefur áður fjárfest í Facebook, Skype, Candy Crush og Clash of Clans. Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Teatime, segist hafa fundið fyrir sterkri löngu að skapa eitthvað nýtt eftir fríið í kjölfar sölunnar á QuizUp til Bandaríkjanna. „Það er ótrúlegt hvað þetta gerðist hratt,“ segir hann í tilkynningu.

Það var svo í sumar sem fjórir af fyrrverandi stjórnendum Plain Vanilla hittust og úr varð ný hugmynd sem við urðum strax mjög spenntir fyrir. Við ákváðum því að stofna nýtt fyrirtæki og bárum hugmyndina undir ýmsa fjárfesta sem við þekktum og höfðu verið með okkur í Plain Vanilla.

Þorsteinn segir að móttökurnar hafi verið vægast sagt góðar. „Og ég er ótrúlega þakklátur fyrir þá trú sem fjárfestarnir hafa haft á hugmyndinni og það traust sem þeir sýna teyminu,“ segir hann.

„Svo bætist við þessi stóri alþjóðlegi fjárfestingarsjóður, Index Ventures, sem hefur gríðarmikla reynslu af fjárfestingum í leikja- og samskiptaiðnaðinum. Þeir leiða fjárfestinguna og koma þar að auki með dýrmæt tengsl að borðinu sem munu hjálpa okkur að ná árangri á þessum stóra markaði.“

Teatime hyggst þróa tölvuleiki fyrir farsíma sem tengja fólk saman í rauntíma á áður óþekktan hátt. Fjárfestingin hjálpar fyirtækinu að vinna hraðar í átt að markmiði sínu sem er að sögn Þorsteins að bylta því hvernig fólk spilar farsímaleiki.

„Í gegnum reynslu okkur af QuizUp sáum við skýrt hvað samskipti milli fólks eru stór hluti af spilaupplifuninni og fjárfestarnir hafa trú á okkar hugmyndum um hvernig megi stórbæta upplifun af farsímaleikjum með nýrri nálgun. Við munum nú fara á fullt að ráða starfsfólk í þróun á fyrstu útgáfu Teatime og vonandi getum við sýnt fólki eitthvað innan nokkurra mánaða.“

Auglýsing

læk

Instagram