Fötluðu pönkararnir unnu finnska Eurovision

Hljómsveitin Pertti Kurikan Nimipäivät keppir fyrir hönd Finnlands í Eurovision í Austurríki í maí. Þetta varð ljóst í kvöld. Hlustaðu á lag hljómsveitarinnar hér fyrir neðan.

Pertti Kurikan Nimipäivät flytur lagið Aina mun pitää, sem þýðir „Ég þarf alltaf“. Hljómsveitin er skipuð fjórum mönnum sem kynntust í listasmiðju fyrir fatlað fólk í heimalandi sínu.

Þeir eru pönkarar og urðu þekktir eftir útgáfu heimildarmyndarinnar The Punk Syndrome, sem fjallar um hljómsveitina.

Hér má sjá hljómsveitina flytja lagið í finnska sjónvarpinu:

Auglýsing

læk

Instagram