Frammistaða Sögu Matthildar vakti athygli: Söngkeppnin góð leið til að berjast við kvíðann

Saga Matthildur í FG hvatti þau sem hafa barist við kvíða að taka skrefið áður en hún steig á svið í Söngkeppni framhaldsskólanna í gær. Flutningurinn vakti mikla eftirtekt.

 

Frammistaða Sögu Matthildar Árnadóttur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ vakti mikla athygli í Söngkeppni framhaldsskólanna í gær. Hún flutti lagið Lay Me Down með Sam Smith og lenti í 3. sæti ásamt því að vinna símakosninguna, sem var í gangi á meðan á keppninni stóð.

Myndband af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.

Saga var jafnframt yngsti keppandi söngkeppninnar, 16 ára gömul. Í kynningunni áður en hún flutti lagið sagðist hún hafa ákveðið að taka þátt í keppninni vegna þess að hún hafi lengi barist við mikla kvíðaröskun og að keppnin væri góð leið til að æfa að koma fram þar sem hún ætlar að vera tónlistarkona í framtíðinni.

„Ég vil bara koma á framfæri að allir sem hafa dílað við kvíða, eða einhvers konar félagsfælni að taka skrefið. Það borgar sig,“ sagði hún.

Tístarar voru einnig hrifnir af frammistöðu hennar:

Hér fyrir neðan má sjá frábæran flutning hennar í söngkeppninni:

Auglýsing

læk

Instagram