Fyrstu glefsur úr bandarískri útgáfu Skam birtar

Fyrstu glefsur úr bandarískri útgáfu á norsku unglingaþáttaröðinni Skam voru birtar á Facebook í nótt. Þættirnir fara svo í loftið í næstu viku. Bandaríska útgáfan fer fram í borginni Austin í Texas-fylki. Sjáðu glefsuna hér að neðan.

Í þessum fyrstu brotum sem birt voru í nótt er aðalpersónan, Megan Flores kynnt til leiks. Hún byggir á Evu, aðalpersónu fyrstu þáttaraðar norsku útgáfunnar.

Facebook keypti hugmyndina að þáttunum af norska ríkisútvarpinu, NRK, og verður bandaríska útgáfan sýnd gegn um streymisveitu Facebook, Facebook Watch. Leikstjóri þáttanna er Julie Andem höfundur Skam.

BE AMAZING – TUESDAY 4/24/18 6:40PM CT

TUESDAY 4/24/18 6:40PM CT

Posted by SKAM Austin on Þriðjudagur, 24. apríl 2018

Auglýsing

læk

Instagram