Grínistinn Dave Chappelle á Íslandi: Skoðar sig um í Reykjavík

Bandaríski grínistinn Dave Chappelle og leikkonan Tessa Thompson eru stödd saman á landinu. Þetta kemur fram á Vísi.

Vísir greinir frá því að þau snæddu saman kvöldverð á veitingastaðnum Kol í vikunni og litu svo við á Kalda bar.

Svo virðist sem þau sem þau séu að skoða sig um í Reykjavík þar sem Thompson hefur birt þessar myndir af Hallgrímskirkju og Perlunni á Instagram-síðu sinni.

oh hello reykjavík

A photo posted by Tessa Thompson (@tessamaethompson) on

oh so futuristic A photo posted by Tessa Thompson (@tessamaethompson) on


Dave Chappelle hefur látið lítið fyrir sér fara í skemmtanabransanum undanfarin ár. Hann er þekktastur fyrir grínþætti sína, The Chappelle Show sem sýndur var á Comedy Central og á Skjá einum um árið.

Tessa Thompson er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Veronica Mars. Hún hefur einnig komið fram í þáttunum Heroes, Private Practice og Grey’s Anatomy.

Auglýsing

læk

Instagram