Hlustaðu á nýtt popplag með Sveppa krull

Hljómsveitin Spilagaldrar hefur sent frá sér lagið Sveitasæla. Hljómsveitina skipa Róbert Örn Hjálmtýsson, Steindór Ingi Snorrason og enginn annar en Sverrir Þór Sverrisson, þekktastur sem Sveppi. Textamyndband við lagið má sjá hér fyrir neðan.

Hljómsveitin varð til fyrir 16 árum en vinnur nú að sinni fyrsti breiðskífu. Sveppi segir í samtali við Fréttablaðið að það sé gaman að fá að syngja með bestu vinum sínum.

Mér líður ekki eins og frontmanni í bandi en það á eftir að koma reynsla á það þegar á líður. Mér finnst gaman að syngja og það er sérstaklega gaman að syngja sín eigin lög með sínum bestu vinum.

Lagið má heyra hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram