Fyrsta verslun sænska verslunarrisans H&M mun opna í Smáralind þann 26. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá versluninni. Fyrsta H&M verslunin á Íslandi verður yfir 3.000 fermetrar mun og vera á tveim hæðum.
„Við erum ótrúlega spennt yfir að því hve langt við erum komin með opnunina og hlökkum mikið til að bjóða viðskiptavini okkar velkomna þegar H&M opnar í Smáralind þann 26. ágúst næstkomandi,” segir Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi, í tilkynningunni.
#röðin kemur aftur
Búast má við því að Íslendingar fjölmenni í röð á opnunardaginn því til mikils er að vinna. H&M mun á sjálfan opnunardaginn veita fyrstu 1.000 gestunum gjafakort. Þar á meðal fær sá/ sú sem er fyrst/ ur 25.000 króna gjafabréf í verslunina, gestur númer tvö fær 20.000 kr. gjafabréf og 15.000 kr. gjafabréf hlýtur þriðji gesturinn. Næstu þúsund gestir fá að gjöf 1.500 króna gjafakort í verslunina.