Hringdi í lögreglu og tilkynnti um hópslagsmál til að fá far heim

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um hópslagsmál við Melatorg. Þegar lögregla mætti á staðinn var þar aðeins einn ölvaður maður, á miðri umferðareyju sem óskaði eftir því að lögreglan skutlaði sér heim.

Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ölvaði maðurinn hafði hringt inn gabb til lögreglu með það að markmiði að fá far heim. Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglu hvort manninum hafi tekist ætlunarverk sitt en hann verður kærður fyrir athæfið. 

Auglýsing

læk

Instagram